Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí 2009 er 339,8 stig og hækkaði um 1,13% frá fyrra mánuði. Þetta þýðir að 12 mánaða verðbólga mælist nú 11,6%, en var í apríl 11,9%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgunnar s.l. 5 ár. Þar sést, eins og kunnugt er hvernig verðbólgan hefur hækkað jafnt og þétt síðustu mánuði og náði 18,6% hámarki í janúar s.l. en hefur síðan þá minnkað nokkuð hratt, eða um sjö prósentustig.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 316,1 stig og hækkaði hún um 1,44% frá apríl.

Þá kemur fram á vef Hagstofunnar að verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 4,9% (vísitöluáhrif 0,22%) og verð á bílum um 4,9% (0,17%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,0% (0,14%). Áhrif af hækkun markaðsverðs voru 0,18% en á móti komu áhrif af lækkun raunvaxta um -0,04%.

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,8% (0,11%). Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 22,6% (0,17%).

Eins og fyrr segir hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,6% síðastliðna tólf mánuði hefur en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 15,5%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,98% sem jafngildir 4,0% verðbólgu á ári (10,2% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2009, sem er 339,8 stig gildir til verðtryggingar í júlí 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.709 stig fyrir júlí 2009.