Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,65% í nóvember frá fyrri mánuði sem er nokkuð meiri hækkun en spár greiningaraðila gerðu ráð fyrir. Greiningardeild Kaupþings spáði 0,3% hækkun. Almennt mælist verðbólgan lág í nóvember og er því árið í ár undantekning frá því - en verðbólgutölur í nóvember hafa ekki mælst hærri í 17 ár. Hækkunin í mánuðinum helgast fyrst og fremst af hækkandi húsnæðis- og eldsneytisverði.

Tólf mánaða verðbólga fer hækkandi og mælist nú 5,2% samanborið við 4,5% í október. Sé hins vegar litið framhjá skattalækkunum í upphafi árs mælist verðbólgan 7%.

Í tilefni greiningardeildar Kaupþings kemur fram að verðbólgutölur í nóvember eru í hærri kantinum þar sem enn og aftur er það húsnæðisliðurinn sem vegur þyngst. Líkur á vaxtahækkun af hálfu Seðlabankans á næsta vaxtaákvörðunarfundi 20. desember nk. hafa því aukist að mati Greiningardeildar.

Greiningardeild Kaupþings telur að kólnun sé framundan á íbúðamarkaði m.a. í ljósi erfiðara aðgengi að lánsfé og hækkandi vaxtakjara íbúðalána. Hins vegar er ólíklegt að þau áhrif verði sjáanleg fyrir næsta vaxtaákvörðunarfund Seðlabankans.

Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að tólf mánaða verbólga nái hámarki í mars á næsta ári þegar áhrif skattalækkana fjara út. Á árinu 2008 er gert ráð fyrir að verðbólgan hjaðni hratt samhliða því sem dregur úr hækkun íbúðaverðs.