Verðbréf Stoða hf. (áður FL Group hf.)  hafa verið færð á athugunarlista vegna óvissu um framtíð útgefanda með vísan til tilkynningar frá félaginu dags. 29. september 2008 vegna beiðni félagsins um greiðslustöðvun. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Stoðir eru kjölfestufjárfestir Glitnis. Í morgun var tilkynnt um að Seðlabanki Íslands hyggist kaupa 75% hlut í bankanum.