Jérôme Kerviel sem er 33 ára, fyrrum verðbréfamiðlari hjá franska bankanum Société Générale, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar eftir að hafa brotið lög og reglur í starfi sínu og meðal annars gerst sekur um skjalafals með því að falsa framvirka samninga. Tap bankans af þessum svikum Kerviel er um 5 miljarðar og var Kerviel dæmdur til að greiða bankanum sömu fjárhæð í skaðabætur.