Farsímaþjónusta er 23 prósent dýrari í ár en hún var fyrir tveimur árum síðan, samkvæmt niðurstöðum Verðlagseftirlits ASÍ. Það sem af er þessu ári nemur hækkunin 10%.

Internetþjónusta hefur sömuleiðis hækkað umtalsvert og er nú tæplega 16% dýrari en í júlí 2011. Verðlagseftirlitið segir að heimilissímaþjónusta hafi hækkað nokkuð minna en hún sé engu að síður tæplega 8% dýrari nú en fyrir tveimur árum eftir nokkra lækkun um mitt þetta ár.

ASÍ segir að fjarskiptafyrirtækin hafi samkvæmt þessu ekki séð ástæðu til þess að taka höndum saman með launafólki og sýna ábyrgð og aðhald í verðlagsmálum líkt og sammælst var um við endurskoðun kjarasamninga í upphafi árs.