Ef tekið er mið af febrúar 2016 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,5%, þar hefur verð sjávarafurða lækkað mest eða um 11% á einu ári miðað við sama tíma fyrir ári. Annar iðnaður lækkaði um 13,1%. Sé horft til þess hvort afurðirnar eru fluttar út eða seldar innanlands hafa útfluttar afurðir lækkað um 6,4% á einu ári, en verð afurða seldra innanlands hefur lækkað um 3,3%.

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 1,4% milli janúar og febrúar 2017. Þar af lækkuðu sjávarafurðir mest eða um 3,9%. Einnig lækkaði annar iðnaður um 1,7% og matvæli lækkuðu um 0,4%. Hins vegar hækkuðu afurðir stóriðju um 0,6%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands.