Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,33% milli mánaða. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,28%. Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 16,9% (áhrif á vísitöluna 0,19%) og kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,4% (0,12%).

Síðustu 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 2% og vísitala án húsnæðis hefur hækkað um 0,4%. Meðalvísitala ársins 2015 var 1,6% hærri en meðalvísitala fyrra árs, en samsvarandi breytingar voru 2% árið áður og 3,9 árið þar-áður.

Framleiðsluverð hækkar um 0,4%

Vísitala framleiðsluverðs hækkar um 0,4% frá fyrri mánuði.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 266,0 stig, sem er hækkun um 2,1% (vísitöluáhrif 0,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 185,1 stig, hækkun um 0,1%.  Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,8% (-0,1) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,0% (-0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,8% (-0,2 %) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 0,9% (0,6%).

Miðað við nóvember 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 5,3% og verðvísitala sjávarafurða lækkað um 0,7%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 17,0% en verð á matvælum hækkað um 1,4%.