Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2019 er 465,3 stig og hækkar um 0,52% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 397,5 stig og hækkar um 0,66% frá febrúar 2019. Hagstofa greinir frá þessu.

Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 9,5%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,9% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,4%.