Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2015 er 432,3 stig og hækkaði um 0,53% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 400,3 stig og hækkaði hún um 0,50% frá júlí. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að sumarútsölur séu að hluta til gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,4% (áhrif á vísitöluna 0,21%).  Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,1% (0,16%) og kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,5% (0,14%). Verð á bensíni og olíum lækkaði hins vegar um 4,0% (-0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% og er það hækkun um 0,3 prósentur frá fyrri mánuði, en verðbólga mældist 1,9% í síðasta mánuði. Vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,7%.