Verðbólga í ágúst mun vera 4,2% ef verðbólguspá Hagsjár hagfræðideildar Landsbankans rætist. Spáin gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,36% milli mánaða og gangi spáin upp mun verðbólga lækka úr 4,3% í 4,2%.

„VNV hækkaði um 0,16% milli mánaða í júlí og var 12 mánaða verðbólga 4,3%, óbreytt frá fyrri mánuði. Breytingin milli mánaða var ívið minni en við spáðum en við höfðum gert ráð fyrir 0,26% hækkun vísitölunnar.

Mest áhrif til hækkunar milli mánaða höfðu flugfargjöld til útlanda, kostnaður við að búa í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) og bensín og dísilolía. Mest áhrif til lækkunar höfðu föt og skór (sumarútsölur) og matur og drykkur. Síðastnefndi liðurinn var sá liður sem helst skýrir mismuninn á spánni okkar og endanlegri tölu,“ segir í verðbólguspá bankans.

Þá gerir hagfræðideild Landsbankans ráð fyrir að VNV hækki um 0,25% í september, 0,39% í október og 0,22% í nóvember. Gengi það eftir spáir hagfræðideildin að verðbólgan verði 4,2% í nóvember.