Verðbólga á Spáni mældist 3,2% í maí samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Spánar. Til samanburðar mældist árshækkun vísitölunnar 4,1% í apríl. Vísitalan lækkaði um 0,1% á milli mánaða.

Aftur á móti mældist kjarnaverðbólga á Spáni, sem undanskilur vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, 6,1% og hjaðnaði um 0,5 prósentustig frá fyrri mánuði.

Hjöðnun verðbólgunnar í maí má einkum rekja til þess að eldsneytisverð í maí 2022 hækkaði en lækkaði i þessum mánuði, að sögn Hagstofu Spánar.

Verðbólgan á Spáni miðað við samræmda vísitölu neysluverðs var 2,9% í maí, samanborið við 3,8% í apríl. Hagfræðingar höfðu spáð því að hún yrði um 3,4%.