Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar lækkaði um 0,90% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,97% frá desember.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,5% sem jafngildir 2,1% verðhjöðnun á ári (1,8% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Hagstofan birtir vísitölumælingar sínar í dag.

Frétt Hagstofunar:

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar er 363,4 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,90% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 346,1 stig og lækkaði um 0,97% frá desember.

Vetrarútsölur leiddu til 10% verðlækkunar á fötum og skóm (vísitöluáhrif -0,66%) og 3,1% verðlækkunar á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. (-0,21%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis minnkaði um 1,8% (-0,22%), aðallega vegna lægra markaðsverðs. Fargjöld í utanlandsflugi lækkuðu um 15% (-0,14%).

Nú er litið á útvarpsgjald sem beinan skatt í stað þjónustugjalds eins og greint var frá í minnisblaði 22. desember 2010. Breytingin hafði 0,41% áhrif til lækkunar á vísitölunni. Verð á annarri opinberri þjónustu hækkaði um 3,4% (0,25%).

Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,4% (0,21%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,1% (0,18%).

Áhrif hækkunar áfengis-, tóbaks-, olíu- og kolefnisgjalda á vísitölu neysluverðs voru 0,21%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,5% sem jafngildir 2,1% verðhjöðnun á ári (1,8% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2011, sem er 363,4 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.175 stig fyrir mars 2011.