Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars er 371,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,95% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 353,9 stig og hækkaði um 1,09% frá febrúar, samkvæmt Hagstofunni.

Verð á bensíni og olíum hækkaði um 6,9% (vísitöluáhrif 0,41%) og verð á fötum og skóm um 3,7% (0,23%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 0,8% (0,10%), aðallega vegna hærra markaðsverðs.

Síðastliðna tólf mánuði hafa vísitala neysluverðs og vísitalan án húsnæðis hækkað jafnmikið eða um 2,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,2% sem jafngildir 5,0% verðbólgu á ári (5,1% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2011, sem er 371,2 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.329 stig fyrir maí 2011.