Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,39% á milli janúar og febrúar og hefur nú hækkað um 10,2% á ársgrundvelli. Verðbólgan jókst því um því um 0,3 prósentustig frá síðasta mánuði þegar hún mældist 9,9%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,81% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 8,9% á síðastliðnum tólf mánuðum. Til samanburðar mældist árshækkun vísitölunnar án húsnæðis 8,3% í janúar.

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að verð á mat- og drykkjarvörum hafi hækkað um 1,9% á milli mánaða, verð á fötum og skóm hækkaði um 6,8% og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 8,7%.

Greiningardeildir Landsbankans og Íslandsbanka höfðu báðar spáð því að verðbólgan myndi hjaðna úr 9,9% í 9,6% á milli mánaða.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti um 0,5 prósentu stýrivaxtahækkun þann 8. febrúar síðastliðinn og eru meginvextir bankans nú 6,5%. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er miðvikudaginn 22. mars.