Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,29% á milli október og nóvember og hefur nú hækkað um 9,3% á ársgrundvelli. Verðbólgan hjaðnaði því um 0,1 prósentustig frá síðasta mánuði þegar hún mældist 9,4%. Verðbólgutölurnar voru í takti við spár greiningardeilda bankanna.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,06% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 7,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Árshækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis hjaðnaði sömuleiðis um 0,1 prósentustig frá fyrri mánuði.

Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að verð á matvörum hækkaði um 0,8% á milli mánaða og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, hækkaði um 1,0%. Hins vegar lækkaði verð á flugfargjöldum til útlanda um 8,9% frá fyrri mánuði.

Greining Íslandsbanka hafði spáð því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,3% og að verðbólgan myndi standa í stað í 9,4%. Hagfræðideild Landsbankans spáði 0,27% hækkun vísitölunnar og að 12 verðbólga myndi hjaðna niður í 9,3%.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði stýrivexti bankans um 0,25 prósentur í síðustu viku, upp í 6,0%. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er þann 8. febrúar næstkomandi.