Í yfirlýsingu Peningastefnunefndar segir að ákvörðunin markist af því að verðbólguhorfur til næstu tveggja ára hafi versnað enn frekar frá síðasta fundi nefndarinnar.

Nýjustu hagtölur og uppfærð spá bankans sem birtist í Peningamálum í dag bendi að auki til meiri vaxtar innlendrar eftirspurnar og atvinnu á þessu ári en búist hafi verið við í síðustu spá.