Hagstofan hefur birt leiðréttingu vegna mistaka sem varð á útreikningum á vísitölu neysluverðs. Villan snerist um útreikninga á leigu frá og með mars 2016 til og með september 2016, þar sem leigan var vanmetin.

Mistökin voru sú að reiknuð leiga hliðraðist svo að áhrif verðbreytinga mældust með eins mánaðar tímatöf.

Áhrifin sögð hverfandi

„Ekki er um að ræða uppsöfnuð áhrif heldur hliðrun á breytingum um einn mánuð í senn. Án þessarar villu hefði mánaðarbreyting vísitölunnar nú í september verið 0,21% í stað 0,48%. Mismunurinn er 0,27%. Áhrif á allan almenning eru hverfandi og verða fæstir lántakendur varir við breytinguna nema að litlu leyti,“ segir í fréttatilkynningu Hagstofunnar.

„Hagstofu Íslands þykir miður að mistök hafi orðið og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Hagstofan fer yfir verklýsingar er snúa að vísitölu neysluverðs og mun taka verklag til endurskoðunar í kjölfarið eins og þörf krefur.“

Segir þar jafnframt að niðurstöður útreikningsins séu leiðréttar í einu mæligildi en eldri gildum verði ekki breytt, og því sé ekki séð að breytingar verði á skuldbindingum aftur í tímann.