Markaðsaðilar vænta þess að ársverðbólga verði 4% á fyrsta og öðrum ársfjórðungi þessa árs og um 4,5% bæði eftir eitt og tvö ár, samkvæmt könnun sem Seðlabankinn gerði meðal markaðsaðila á skuldabréfamarkaði á dögunum 29. janúar til 1. febrúar. Er þetta um 0,2-0,3 prósentum minni verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun bankans sem framkvæmd var í nóvember.

Jafnframt sýna niðurstöður að markaðsaðilar vænta þess að ársverðbólga verði að meðaltali um 4,5% á næstu fimm og tíu árum, sem er svipuð niðurstaða og í síðustu könnun. Markaðsaðilar vænta þess að gengi krónu gagnvart evru verði 175 krónur eftir eitt ár en það er hækkun á gengi evrunnar um 8 krónur frá síðustu könnun.

Niðurstöður könnunar bankans sýna að markaðsaðilar vænta þess að veðlánavextir Seðlabankans haldist óbreyttir í 6% á fyrri helmingi ársins en það eru 0,25 prósentum lægri vextir en í síðustu könnun bankans. Að auki vænta markaðsaðilar að veðlánavextir verði 6,25% eftir eitt ár sem er einnig lækkun um 0,25 prósentur frá fyrri könnun. Meirihluti markaðsaðila álitu taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt þegar könnunin var framkvæmd.