Niðurstöður væntingakönnunar Seðlabankans í maí sýna að væntingar markaðsaðila um ársverðbólgu hafa lækkað frá síðustu könnun sem framkvæmd var í lok janúar sl. Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að ársverðbólga verði að meðaltali um 3,5% á öðrum ársfjórðungi þessa árs og 3,7% á þeim þriðja, sem er um 0,6-0,7 prósentum minni verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun bankans.

Dagana 6.–10. maí kannaði Seðlabanki Íslands væntingar markaðsaðila til ýmissa hagstærða, svo sem verðbólgu og vaxta. Leitað var til 36 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana og fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar. Svör fengust frá 25 aðilum og var svarhlutfallið því 69%.

Niðurstöður sýna einnig að markaðsaðilar vænta þess að ársverðbólga verði 4% bæði eftir eitt og tvö ár, sem er um hálfrar prósentu lækkun frá síðustu könnun. Þeir gera jafnframt ráð fyrir að ársverðbólgan verði að meðaltali 4,2% á næstu fimm árum og 4% á næstu tíu árum, sem er 0,3 og 0,4 prósentum minni verðbólga en þeir gerðu ráð fyrir í janúar.

Markaðsaðilar vænta þess að gengi krónu gagnvart evru verði 163 krónur eftir eitt ár en það er lækkun á gengi evrunnar um 12 krónur frá janúarkönnuninni.

Miðað við miðgildi svara í könnuninni vænta markaðsaðilar þess að veðlánavextir Seðlabankans haldist óbreyttir í 6% til loka þessa árs en að vextirnir hækki um 0,25 prósentur á fyrsta fjórðungi 2014 og verði þá 6,25%. Það eru 0,25 prósentum lægri vextir en þeir gerðu ráð fyrir í síðustu könnun bankans. Rúmlega helmingur markaðsaðila álitu taumhald peningastefnunnar vera hæfilegt þegar könnunin var framkvæmd en rúmlega þriðjungur taldi taumhaldið vera þétt.