Helstu ástæður minnkandi sölu nýrra fólksbíla á árinu má rekja til verðhækkana sem orðið hafa af völdum styrkingar á gengi krónunnar, en einnig vegna hækkunar á vörugjöldum vegna breytinga á mæliaðferðum á útblæstri bíla. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bílgreinasambandinu sem jafnframt segja að þar ráði mestu samdráttur undanfarna þrjá mánuði.

Gera má ráð fyrir að verðhækkun vegna vörugjaldabreytinga gangi að hluta til til baka á flestum gerðum nýrra fólksbíla í kjölfar lagabreytinga sem samþykktar voru á Alþingi í lok nýliðins mánaðar og tóku gildi þann 30. nóvember.

Bílgreinasambandið benti ítrekað á þau fyrirsjáanlegu áhrif sem óvissa um breytingar á vörugjöldum myndu hafa á bílasöluna eins og raunin varð. María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins fagnar því mjög áorðnum lagabreytingum sem eyddu óvissunni segir í tilkynningunni.

Fólksbílasala á pari við árið 2016

Sala nýrra fólksbíla í nóvember var 29,6% minni en í sama mánuði 2017 sem var langstærsta ár í sölu bíla frá upphafi. Í nýliðnum mánuði voru alls 722 bílar nýskráðir samanborið við 1.026 í sama mánuði fyrra árs og nemur samdrátturinn 304 bílum.
Fyrstu 11 mánuði ársins voru 17.494 fólksbílar nýskráðir, 14,2% færri en á sama tímabili 2017. Fólksbílasalan fyrstu ellefu mánuðina var þó nánast á pari við sama tímabil 2016.

Raf- og tengiltvinnbílar auka jafnt og þétt hlutfall sitt á fólksbílamarkaði landsmanna. Salan í nóvember var einu prósenti meiri en í október og er hlutfall þeirra á fólksbílamarkaðnum í heild nú um 21%. Eftirspurn innanlands eftir grænum bílum fer vaxandi eins og í flestum öðrum löndum.

Almenningur eykur hlutfall sitt

Hlutfall bílakaupa einstaklinga og rekstraraðila án bílaleiga hefur vaxið örlítið á árinu miðað við undanfarin tvö ár og nam hún 61% fyrstu ellefu mánuðina miðað við 60% 2017 og 55% árið 2016. Alls nýskráðu bílaleigur um 39% nýrra fólksbíla fyrstu ellefu mánuði ársins og hefur hlutfallið minnkað undanfarin tvö ár.

Á vegum Bílgreinasambandsins er nú unnið að gerð reiknivélar þar sem notendur munu geta séð hver vörugjöldin verða á bifreiðum samkvæmt nýsamþykktum lagabreytingum Alþingis. Reiknivélin mun bæði sýna áhrifin til loka ársins og einnig frá og með 1. janúar þegar fallið verður frá vörugjaldaflokkum og línuleg álagning tekin upp.