Góðmálmar hafa hækkað mikið í verði undanfarin misseri.  Síðasta árið hefur silfur tvöfaldast í verði, gull hækkað um 25%, platiníum hækkað um 23% og palladíum hækkað um tæp 70%. Demanatar hafa aðeins hækkað um 4% á tímabilinu.

Flestir stærri skartgripasalar gera framvirka samninga á þeim hráefnum sem þeir nota.  Skartgripasalinn Tiffany´s mun á mánudag hækka verð á vörum sínum á bilinu 10-15%.