© Getty Images (Getty)
Verð á 4-5 kg ferskum laxi hefur hækkað um rúm 13% milli vikna. Þetta er önnur vikan í röð þar sem verð á laxi hækkar. Nemur hækkunin á þessum tveimur vikum um 30%. Það er þó enn langt í þar til verðið nái þeim hæðum sem það var í fyrr á árinu þegar verðið fór í 45 norskar krónur á kíló af því er fram kemur í greiningarefni IFS.