Verðmæti afla upp úr sjó nam nærri 13,4 milljörðum króna í maí, sem er 5,4% meira en í maí 2014, að því er kemur fram í tölum Hagstofunnar. Verðmæti þorsks var mest eða tæpir 4,8 milljarðar króna sem er 2% aukning miðað við maí í fyrra. Verðmæti ufsa jókst um 40% miðað við sama mánuð í fyrra en í heild var aflaverðmæti botnfisks svipað á milli ára.

Flatfiskaflinn jókst um 49% að verðmæti og munar þar mest um grálúðu og skarkola. Af uppsjávartegundum veiddist nær eingöngu kolmunni í maí en aflaverðmæti hans jókst um 16,6% samanborið við maí 2014. Verðmæti skel- og krabbadýraafla dróst saman um 20% miðað við maí 2014.

Á tólf mánaða tímabili frá júní 2014 til maí 2015 jókst aflaverðmæti um 7,5% miðað við sama tímabil ári áður. Á þessu tólf mánaða tímabili hefur verðmæti þorsks aukist um 11,9%, úthafskarfa um 15,4% og loðnu um ein 224,9%. Hins vegar dróst verðmæti ýsu saman um 12,4%, flatfisksafla um 15,8% og skel- og krabbadýraafla um 4,1%.