Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 90,3 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins samanborið við 95,7 milljarða á sama tímabili árið á undan. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um tæplega 5,4 milljarða króna eða 5,6% á milli ára. Þetta sýna tölur Hagstofunnar sem voru birtar í morgun.

Aflaverðmæti botnfisks var tæplega 54,2 milljarðar króna og dróst saman um 8% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 27,7 milljarðar og dróst saman um 8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 6,8 milljörðum og dróst saman um 14,2% en verðmæti karfaaflans nam tæpum 7,9 milljörðum, sem er 8% samdráttur frá fyrstu sjö mánuðum ársins í fyrra. Verðmæti úthafskarfa nam 2,1 milljarði króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og jókst um 8,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti ufsaaflans jókst um 2,5% milli ára og nam tæpum 5,3 milljörðum króna í janúar til júlí á þessu ári.

Verðmæti uppsjávarafla nam tæpum 26,2 milljörðum króna í janúar til júlí á þessu ári, sem er um 3% aukning frá fyrra ári. Þá aukningu má rekja til loðnuafla og kolmunnaafla. Aflaverðmæti loðnu nam 15,6 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins sem er 19,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti kolmunna jókst um 10,1% frá fyrra ári og var um 2,8 milljarðar króna í janúar til júlí á þessu ári. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 61% milli ára og var 514 milljónir króna í janúar til júlí. Aflaverðmæti makríls var um 6,5 milljarðar króna á fyrstu sjö mánuðum ársins sem er 6,6% samdráttur miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti flatfisksafla nam tæpum 6 milljörðum króna, sem er 17,9% samdráttur frá janúar til júlí í fyrra.