Áætlað er að verðmæti eignasafns Landsbankans hafi hækkað um 70,1 milljarð króna á milli ársfjórðunga. Jafngildir þetta um 6% hækkun á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta kom fram á kynningarfundi skilanefndar Landsbankans sem nú fer fram á Nordica hóteli.

Áætlaðar endurheimtur á eignasafninu eru nú 1.245 milljarðar króna miðað við gengi krónunnar 31. mars síðastliðinn. Hins vegar voru allar kröfur festar gagnvart gengi krónunnar 22. apríl síðastliðinn til að lágmarka gengisáhættu í uppgjöri við kröfuhafa.

Miðað við það eru eignir upp í kröfurnar metnar 1.300 milljarðar króna. Forgangskröfur eru sagðar 1.319 milljarðar. Eignirnar nema því tæplega 99% af forgangskröfum.

Af eignum gamla Landsbankans eru 33% í reiðufé eða ígildi þess.