Heildarfiskaflinn jókst um 1% milli ára í nóvember, en verðmæti aflans jókst um 5,4%. Heildaraflinn fyrir 12 mánaða tímabil jókst um 10% að því er Hagstofan greinir frá.

Í nóvember nam aukningin í botnfiskafla 12% frá síðasta ári, þó þorskveiðarnar stæðu nokkurn vegin í stað. Veiðar á Ufsa tvöfölduðust hins vegar. Um fjórðungssamdráttur var í síldarafla, meðan kolmunninn tvöfaldaðist. Veiðar á flatfisktegundum drógust síðan saman um 12% en skel- og krabbadýraaflinn jókst um meira en þriðjung.

Fiskafli íslenskra skipa í nóvember var 77.902 tonn sem er 1% meiri afli en í nóvember 2016. Botnfiskaflinn nam rúmum 44 þúsund tonnum og jókst um 12%. Af botnfisktegundum veiddist sem fyrr mest að þorski eða rúm 26.700 þúsund tonn sem er svipaður afli og í nóvember 2016. Tæp 5.700 tonn veiddust af ufsa sem er ríflega tvöfalt meiri afli en á sama tíma í fyrra.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 31.600 tonnum og samanstóð af síld og kolmunna. Síldaraflinn nam tæpum 24 þúsund tonnum og dróst saman um 25% en rúm 7.700 tonn veiddust af kolmunna sem er nær tvöfalt meira en í nóvember 2016.

Afli flatfisktegunda nam 1.350 tonnum og dróst saman um 12%. Skel- og krabbadýraafli jókst hins vegar um 35%, nam 735 tonnum samanborið við 543 tonn í nóvember 2016. Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá desember 2016 til nóvember 2017 var 1.166 þúsund tonn sem er 10% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr. Verðmæti afla í nóvember metið á föstu verðlagi var 5,4% meira en í nóvember 2016.