Útflutningur á landbúnaðarafurðum hefur aukist um 7% fyrstu fjóra mánuði ársins samborið við árið 2010 og nemur útflutningurinn rúmum þremur milljörðum króna það sem af er ári.

Verðmæti útfluttra landbúnaðarafurða hefur aukist mikið undanfarin ár og nam útflutningsverðmæti ársins 2010 tæpum níu milljörðum. Verðmæti útfluttra landbúnaðarafurða hefur aukist nánast stöðugt undanfarin ár og hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2007 þegar útflutningur nam 3,5 milljörðum allt árið.