21st Century Fox, sem er í eigu bandaríska milljarðamæringsins Rupert Murdoch, mun greiða 11,7 milljarða punda fyrir 61% í Sky. 21st Century Fox mun þannig eignast félagið að fullu. Hluthafar Sky munu þá fá 10,75 pund fyrir hvern hlut og er félagið því verðmetið á ríflega 18,5 milljarða punda.