Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,19% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,33%, en sá óverðtryggði lækkaði um 0,12%.

Fyrirtækjaskuldabréfavísitalan lækkaði um 0,18% og hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,18%. Velta á skuldabréfamarkaði nam rúmum 4,9 milljörðum króna.