Töluvert mikil hækkun varð á verðtryggða hluta GAMMA skuldabréfavísitölunnar í dag, en velta var með minna móti. GAMMA vísitalan í heild sinni hækkaði um 0,42%, en verðtryggði hluti hennar hækkaði um 0,67%. Óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði aftur á móti um 0,23%.
Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 3,03%, verðtryggði hlutinn um 3,75% og óverðtryggði hlutinn um 1,59%. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 7,14 milljörðum króna og nam velta með verðtryggð bréf þar af um 4,7 milljörðum.