Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,24% í 2,1 milljarða króna viðskiptum í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,35%, en sá óverðtryggði um 0,01%.

Mun meiri viðskipti voru með óverðtryggð skuldabréf, eða fyrir 1.782 milljónir, á meðan velta með verðtryggð bréf nam 361 milljón króna. Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,12% í 253 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,9% og markaðsvísitala GAMMA um 0,14% í dag.