Gamma
Gamma
© BIG (VB MYND/BIG)
Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 1,5% í september. Alls hækkað vísitalan um 5,7% á fyrstu níu mánuðum ársins, samkvæmt mánaðarlegu yfirliti GAMMA. vísitalan inniheldur bæði verðtryggð og óverðtryggð bréf.

Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,0% í september og nemur hækkun ársins um 9,2%. Óverðtryggða vísitalan hækkað um 2,9% í síðasta mánuði. Breyting ársins er lækkun upp á 2,8%.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,7% í 29,1% í GAMMA: GBI í september. Líftími vísitölunnar lækkaði lítillega í 8,8 ár. Meðaldagsveltan var 10,7 milljarðar. Það sem af er ári er meðalvelta um 10,2 milljarðar.