Rick Antonson, forstjóri og stjórnarformaður Tourism Vancouver hefur farið fyrir ferðamályfirvöldum í Vancouver í Kanada í 21 ár. Antonson var með erindi á vorráðstefnu um stöðu og framtíðarhorfur í ferðaþjónustu á Íslandi sem haldin var á vegum Landsbankans í Hörpu í gær. Í erindi sínu fullyrti Antonson að ferðaiðnaðurinn myndi bráðlega verða stærsti iðnaður heims en ítrekaði enn fremur að þörf sé á því að hún sé hugsuð til langs tíma.

VB Sjónvarp ræddi við Rick Antonson.