Fall á verði á hráolíu virðist hafa stöðvast á mörkuðum austan hafs og vestan við 67 til 68 dollara á tunnuna. Í morgun hefur verðið örlítið þokast upp á við og er nú 67,51 dollar hjá Brent í London og 68,81 dollarar á tunnu hjá WTI í New York.