Seðlabankinn Stýrivaxtafundur 16.03.11 - 2
Seðlabankinn Stýrivaxtafundur 16.03.11 - 2
© BIG (VB MYND/BIG)
Vergur gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 827,8 milljörðum króna í lok júní og hækkaði um 119,2 milljarða króna milli mánaða er fram kemur í hagtölum Seðlabankans. Hreinn gjaldeyrisforði, þ.e. erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtíma skuldum, nam um 408,3 milljörðum króna í lok júní 2011. Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 419,5 milljarðar króna miðað við í lok júní 2011.