Viðskitpi með hlutabréf í bresku verslunarkeðjunni Somerfield hafa verið stöðvuð í Kauphöllinni London að beiði stjórnar fyrirtækisins. Beðið er eftir tilkynningu síðar í dag um sölu á fyrirtækinu.

Somerfield hefur samþykkt yfirtökutilboð upp á 1,1 milljarð punda frá fjárfestingarhópi undir forystu Roberts Tchenguiz, fasteignaeiganda. Í hópnum eru einnig Apax Partners og Barclays Capital.