Starfsfólk SP-Fjármögnunar hefur að undanförnu unnið við endurútreikning erlendra bílalána og kaupleigusamninga samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar sem kvað á um að lánin skyldu endurreiknuð miðað við almenna vexti Seðlabanka Íslands á hverjum tíma samkvæmt tilkynningu.

Þar kemur fram að fyrst í stað leggur SP-Fjármögnun áherslu á að ljúka endurútreikningi á þeim samningum þar sem einn og sami lántaki hefur verið skráður frá upphafi. Stefnt er að því að þeirri vinnu verði lokið eigi síðar en fimmtudaginn 7. október nk.

Ekki liggur ljóst fyrir hvenær endurútreikningi annarra samninga lýkur en kappkostað er að þeirri vinnu ljúki eins fljótt og kostur er. Hér er sérstaklega átt við samninga sem hafa verið yfirteknir af öðrum leigutaka.

SP-Fjármögnun mun birta nánari upplýsingar um endurútreikning samninga á heimasíðu fyrirtækisins eins fljótt og auðið er.