Miðasala hófst á sex jólatónleika Baggalúts kl. 10 í morgun. Alls voru 5.820 miðar í boði og seldust þeir upp á innan við klukkutíma.

Tónleikarnir verða haldnir í Háskólabíói og kostaði hver miði 7.990 krónur. Það þýðir að rúmlega 46,5 milljónum króna var varið í jólatónleika Baggalúts nú í morgun.

Á síðasta ári var Baggalútur einnig með sex jólatónleika á dagskrá og seldust miðarnir þá upp á örskömmum tíma. Greip hópurinn þá til þess að bjóða upp á aukatónleika til að anna eftirspurn, og er ekki útilokað að hið sama verði uppi á teningnum í ár.