Að loknum aðalfundi Haga hf., sem haldinn var fyrr í dag, hélt nýkjörin stjórn sinn fyrsta stjórnarfund þar sem stjórnarformaður og varaformaður voru kjörnir. Auk þess voru undirnefndir stjórnar kjörnar.

Eins og sjá má að neðan var Eva Bryndís Helgadóttir kjörin stjórnarmaður en Samkeppniseftirlitið er að kanna hvort seta hennar brjóti gegn sátt eða ekki.

Niðurstaða er sem hér segir:

  • Stjórnarformaður: Davíð Harðarson
  • Varaformaður: Eiríkur S. Jóhannsson
  • Aðrir í stjórn Haga eru: Eva Bryndís Helgadóttir, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Katrín Olga Jóhannesdóttir.
  • Formaður endurskoðunarnefndar: Anna Þórðardóttir
  • Aðrir í endurskoðunarnefnd eru: Eva Bryndís Helgadóttir og Katrín Olga Jóhannesdóttir
  • Formaður starfskjaranefndar: Jensína Kristín Böðvarsdóttir
  • Aðrir í starfskjaranefnd eru: Davíð Harðarson og Eiríkur S. Jóhannsson