Vegagerðin vinnur nú að því að undirbúa útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Ríkisstjórnin hefur heimilað útboðin og framkvæmdir munu dreifast á tvö ár þ.e.a.s. árin 2010 og 2011.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni en reiknað er með að útboðin verði tilbúin á allra næstu vikum og að framkvæmdir gætu hafist í báðum verkum í júní 2010.

Verkið á Suðurlandsvegi felst í breikkun milli Fossvalla í Lögbergsbrekku ofan við Lækjarbotna og Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna. Lengd útboðskafla er um 6,5 km. Að vestan tengist vegkaflinn núverandi þriggja akreina vegi um Lögbergsbrekku og að austan tengist vegurinn núverandi 2+1 vegi um Svínahraun.

Í verkinu er einnig lagfæring á öxlum núverandi vegar, sem verður suðurakbraut Eftir framkvæmdina verður Suðurlandsvegur með aðskildar akstursstefnur samfellt allt milli Fossvalla og vegamóta við Hamragilsveg eða um 11,3 km vegur.

Á Vesturlandsvegi er um að ræða tvöföldun kaflans milli Hafravatnsvegar og Þingvallavegamóta, samtals 1,5 km, stækkun hringtorgsins við Álafossveg, lengingu undirganga fyrir göngu-, hjólreiða- og reiðfólk við Varmá, lengingu stálundirganga fyrir göngu- og hjólreiðafólk, breikkun brúar yfir Varmá, gerð göngubrúar yfir Varmá, gerð reið-, göngu- og hjólreiðastíga meðfram Hringvegi, ásamt hljóðmön milli vegar og byggðar við Ásland. Verkið er unnið í samráði við Mosfellsbæ.

Verklok beggja verkefnanna eru áætluð haustið 2011.