Ómar Ásbjörn Óskarsson hefur verið ráðinn til starfa sem verkefnisstjóri málefnanefnda og aðildarfélaga á skrifstofu Samfylkingarinnar og hefur þegar hafið störf.
Ómar er með BA próf í stjórnmálafræði ásamt meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og lýkur meistaragráðu í viðskiptafræði í vor.