Fyrri ofn kísilvers PCC á Bakka við Húsavík verður gangsettur um miðja næstu viku. Þetta segir Hafsteinn Viktorsson, forstjóri PCC BakkiSilicon, í samtali við Við­ skiptablaðið. Fyrst þurfi yfirvöld þó að klára úttekt sína á kísilverinu og gefa grænt ljós á gangsetningu.

„Við teljum að allt sé komið en við getum ekki gefið okkur ákvörðun yfirvalda fyrirfram. Verksmiðjan fer í gang í næstu viku, nema að það komi eitthvað mjög óvænt upp á, eins og bilun á búnaði eða eitthvað slíkt,“ segir Hafsteinn.