Með samþykki Umhverfisstofnunar verður kveikt á ofni kísilmálverksmiðju United Silicon klukkan 16 á morgun. Í tilkynningu segir að það sé von stjórnenda United Silicon að með þeim aðgerðum sem unnið hafi verið að undanfarnar vikur hafi tekist að vinna bug á þeim vandamálum sem komið hafa upp í rekstri verksmiðjunnar.

„Í kjölfar ítarlegrar úttektar og ábendinga norska ráðgjafafyrirtækisins Multikonsult hefur verið unnið að endurbótum og lagfæringum á búnaði verksmiðjunnar," segir í tilkynningu frá United Silicon. „Þess utan hefur verið ráðist í frekari framkvæmdir og úrbætur á búnaði, að tillögu stjórnenda fyrirtækisins. Þessum framkvæmdum er nú lokið. Næsta skref í úrbótaáætlun fyrirtækisins er úttekt Multikonsult á verksmiðjunni með ofninn í rekstri en gert er ráð fyrir að það geti tekið allt að þremur vikum að ná upp fullum afköstum og stöðugum rekstri ofnsins. Norsku ráðgjafarnir munu vinna áfram með fyrirtækinu í kjölfar gangsetningar.

Norska loftrannsóknastofnunin NILU mun mæla loftgæði inni í verksmiðjunni og í nágrenni hennar þar á meðal inni á heimili í Reykjanesbæ þar sem lyktar hefur orðið vart.  Til að fá áreiðanlegar mælingar á loftgæðum og til að ákveða aðgerðir sem takmarka að lykt berist frá verksmiðjunni í framtíðinni, er nauðsynlegt að keyra ofninn á mismundandi álagi.  Við þær aðstæður má reikna með að einhver lykt muni berast frá verksmiðjunni. Markmið mælinga er einnig að fá óyggjandi vissu um hvaða efni geti borist frá verksmiðjunni við ólíkar aðstæður og í hvaða magni, svo unnt sé að grípa til viðeigandi aðgerða."