Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki töluvert í nóvember eða um 0,3%. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga mælast 4,8% samanborið við 4,5% í október. Hækkun í mánuðinum má að mestu leyti rekja til áframhaldandi hækkunar húsnæðisverðs. Í spá okkar reiknum við ekki með miklum breytingum á öðrum liðum.