Útflutningsverðmæti áls hefur aukistum liðlega 35% fyrstu 10 mánuði ársins og er árið 2010 þegar orðið metár í álflutningi. Þetta segir í tilkynningu frá Samáli, samtökum álfyrirtækja á Íslandi.

Heildarverðmæti útflutts áls nam 186 milljörðum króna á fyrstu 10 mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam verðmæti útflutts áls um 137 milljörðum króna og nemur verðmætaaukninging því 49 milljörðum króna.

„Heildarútflutningsverðmæti  áls það sem af er ári er þegar orðið talsvert meira en allt síðasta ár, en útflutningsverðmæti áls árið 2009 nam alls um 173 milljörðum króna. Ljóst er að útflutningsverðmæti þessa árs mun slá öll met en heildarverðmæti álútflutnings á þessu ári er þegar orðið meira en 2008, en það ár nam útflutningsverðmæti áls um 183 milljörðum króna og hafði aldrei verið meira,“ segir í tilkynningu Samáls.

„Útflutningur vöru og þjónustu á fyrstu þremur ársfjórðungum þessa árs nam tæplega 649 milljörðum króna og jókst um 65 milljarða króna eða um 11% á milli ára. Vægi álútflutnings í þessari aukningu er drjúgt en á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins jókst álútflutningur um liðlega 53 milljarða króna. Hlutdeild álútflutnings í heildarútflutningstekjum þjóðarinnar nam 26,6% á þessu tímabili.“