Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 57,9 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2007 samanborið við 52,4 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 5,5 milljörðum króna eða 10,6% milli ára. Aflaverðmæti ágústmánaðar er óbreytt frá  ágúst í fyrra 6 milljarðar, samkvæmt því segir í vef Hagstofu Íslands.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 43 milljarðar miðað við 39,3 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 9,4% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 21,4 milljarðar og jókst um 18,2%. Aflaverðmæti ýsu nam 9,4 milljörðum, sem er 22% aukning, og ufsaaflinn dróst saman að verðmæti um 10,8%, var 2,8 milljarðar króna.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 15,3%, nam 3,3 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 28,8% og nam 10,8 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra og kolmunna að verðmæti 3 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 25 milljarðar króna, sem er aukning um 5,3 milljarða eða 26,6%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 15,2%, var 9,4 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 16,5 milljarðar og dróst saman um 5,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 5,8 milljörðum sem er 3,5% aukning segir á heimasíð Hagstofunnar.