Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 75,3 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2007 samanborið við 70,5 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur tæpum 5 milljörðum króna eða 6,7% milli ára. Aflaverðmæti í nóvember var 6 milljarðar sem er svipað og í nóvember 2006.

Í frétt á vef Hagstofu Íslands segir að aflaverðmæti botnfisks í lok nóvember hafi veri’ 56,7 milljarðar miðað við 52,9 milljarða á sama tíma árið 2006 og hefur því aukist um 7% á milli ára. Verðmæti þorskafla var 27,5 milljarðar og jókst um 10,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 13,5 milljörðum, sem er 27,7% aukning. Aflaverðmæti karfa dróst saman um rúm 10% á milli ára, var 5,6 milljarðar. Ufsaafli dróst saman að verðmæti um 8,5%, var 4 milljarðar króna fyrstu ellefu mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17%, nam 4 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 14,9% og nam 13,7 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra. Verðmæti síldarafla var 4,9 milljarðar og dróst saman um 14,6% á milli ára. Aflaverðmæti kolmunna var 3 milljarðar samanborið við 3,6 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins 2006.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 31,1 milljarðar króna, sem er aukning um 4,5 milljarða eða 17,1% á milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 8,5%, var 12 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 22,2 milljarðar og dróst saman um 5,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8 milljörðum sem er 7,1% aukning.