Í dag voru í iðnaðarráðuneytinu árituð drög að fjárfestingarsamningi við Verne Holding ehf. um byggingu og rekstur gagnavers í Reykjanesbæ. Samningurinn kveður á um tímabundnar ívilnanir vegna fjárfestingarinnar hér á landi. Byggt var á fyrirmyndum í þeim fjárfestingarsamningum sem gerðir hafa verið vegna stóriðju á undanförnum árum segir í tilkynningu.
Þar segir að á næstunni mun iðnaðarráðherra leggja fyrir ríkisstjórn frumvarp til laga um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ. Í frumvarpinu er iðnaðarráðherra veitt heimild til að gera fjárfestingarsamning fyrir hönd ríkisstjórnarinnar við Verne Holding ehf. um byggingu og rekstur gagnaversins svo staðfesta megi samninginn.