Orkustofnun hefur veitt Verne Holdings ehf. leyfi til stækkunar varaaflsstöðvar á Ásbrú í Reykjanesbæ úr 4 MW í 8 MW. Leyfið einskorðast við allt að 8 MW varaaflsstöð og eru breytingar umfram þau mörk háð leyfi Orkustofnunar. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkusölunnar.

Framkvæmdin tryggir framleiðslu á varaafli fyrir gagnaver en leyfið sjálft felur ekki í sér heimild til að afhenda raforku inn á dreifi- og/eða flutningskerfi.

Verne Holdings hyggst ráðast í framkvæmdir vegna síðari hluta fyrsta áfanga í uppbyggingu varaaflsstöðvar fyrir gagnaver fyrirtækisins sem felur í sér tvær nýjar vélar og tvo nýja birgðageyma af sömu stærð og fyrir eru. Núverandi varaaflsstöð er rekin í samræmi við fyrirliggjandi virkjunar- og starfsleyfi.

Gagnaverið er húsnæði með tilheyrandi búnaði sem sérstaklega er byggt utan um tölvubúnað og tilheyrandi raf- og kælibúnað. Til að tryggja að starfsemi gagnversins raskist sem minnst, verði rof á afhendingu rafmagns frá Landsneti, er starfrækt varaaflsstöð við gagnaverið.

Framkvæmdir á grundvelli leyfisins skulu hefjast innan þriggja mánaða frá útgáfu leyfissins og ljúka fyrir 31. desember 2015.