Fyrir nokkrum mínútum fóru fram viðskipti með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] fyrir rúma 2,5 milljarða.

Um að er að ræða 112 milljón hluti á genginu 22,9 sem er örlítið undir meðalgengi félagsins í dag en það er 23,1 á hvern hlut.

Síðan þá hafa farið fram þrenn viðskipti með milljón hluti í bankanum á því gengi (23,1) í hvert skipti.

Velta með bréf í Landsbankanum er nú um 2,6 milljarðar en fyrir utan þau fjögur sem hér er búið að minnast á eru örlítil viðskipti.

Velta með hlutabréf er rétt rúmir 2,9 milljarðar það sem af er degi.